Niðurstaða í opnu söluferli vegna Lyfju hf.

Á grundvelli reglna Lindarhvols ehf. um sölu stöðugleikaeigna, þar sem segir að sala og ráðstöfun skuli eiga sér stað að undangengnu opnu söluferli og gætt sé gagnsæis og jafnræðis bjóðenda, auglýsti fyrirtækjaráðgjöf Virðingar hf. allt hlutafé í Lyfju hf. til sölu. Nánari upplýsingar um hið opna söluferli á Lyfju hf. og helstu skilmálum þess má sjá hér: http://lindarhvolleignir.is/2016/09/08/lyfja-hf-opid-soluferli/, http://www.virding.is/2016/09/08/lyfja-hf-opid-soluferli/

Fjögur skuldbindandi tilboð bárust í hlutafé Lyfju hf. áður en frestur til að leggja slík tilboð fram rann út 7. nóvember sl. Hagar hf. áttu hæsta tilboðið og var skrifað undir samning um kaup Haga hf. á öllu hlutafé í Lyfju hf. Kaupsamningurinn er gerður með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Reiknað er með að niðurstaða áreiðanleikakönnunar liggi fyrir seinni part desembermánaðar og að endanleg niðurstaða Samkeppniseftirlitsins verði birt ekki seinna en um mitt ár 2017. Þar til niðurstaða Samkeppniseftirlitsins fæst verður rekstur Lyfju og dótturfélaga með óbreyttu sniði. Frekari upplýsingar um niðurstöðuna má sjá hér: http://www.virding.is/2016/11/17/samningur-um-solu-a-lyfju-hf-undirritadur/